Web Analytics
Alda Ármanna Sveinsdóttir

Myndlistarkona og listmálari

    Forsíða Ferilskrá Sýningar Umfjöllun  
 
 
Konumyndir
Konur stússa
Konur dansa
Helgimyndir
Landslagsmyndir
Collas
Myndir til sölu
Collas Konumyndir
Helgimyndir


Alda Ármanna gestalistamaður hjá SÍM

Alda Ármanna opnar sýningu í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavikur laugardaginn 2. 4. 2011 kl.14.00 Viðfangsefni sýningarinnar eru aðallega konur sem komið hafa við á vinnustofunni á ýmsum tímum, en meginuppistaðan eru málverk frá þessu ári og því síðasta.

Á síðasta var mikil umræða var um athyglisverða þátttöku kvenna á margvíslegum vettvangi mörg afmæli og tímamót. Konur voru hvattar til að vera sýnilegar og fagna degi kvenna 24. Október og láta ekki deigan síga þó syrti í álinn. Hvað gerir málari, kona sem málar konur. Pantar sýningarsal. En Tjarnarsalur Ráðhússins var ekki laus fyr en með vorinu. Og myndlistakonan Alda Ármanna á einmitt 75 ára afmæli 2. 4. 2011. Nú varð að gera gott plan. Tala við konurnar sem alltaf voru til í að vera sýnilegar á málverki og hinar líka. Meðal eldri kvenna er líka til athyglisverður hópur. Konur sem eru jafnan til í að styrkja hinar og hvetja. Spyrja um þá sem ekki mæta í sundleikfimina eða hvað það nú er. Er ekki allt í lagi hjá henni eða honum, brosandi og hlýlegar. Þær voru líka til í að sitja fyrir- ekki taka allar hrukkurnar- en voru samt ekkert hátíðlegar og sögðu frá lífi sínu.

Svo komu líka ungu konurnar allt niður í 14 ára, frísklegar og glaðar. Áttu sína drauma.

En vinnustofan geymir líka málverk sem var gaman að breyta, skerpa á eða gefa nýtt útlit. Ófullunnar skissur eða helgimyndir. Gyðjur. Þegar ég fór til Finnlands á Nordisk Forum með sýninguna 1994 "Gyðjur í íslensku samfélagi" málaði ég mínar bestu vinkonur og þær voru svo tilbúnar og geisluðu. Þetta var dásamleg vinna. Sama er með guðsmóðurmyndina sem var á sýningarferlinu Tíminn og trúin og fór um kirkjur landsins í Kirkjulistaári 2000 og hún var líka á aðventusýningu Grafarvogskirkju 2003.

Huldukonur móður minnar fá að vera með í því landslagi sem þær una í og örfáar myndir úr landslaginu umhverfis mig. Verið öll velkominn.

Vefhönnun: Emstrur              Alda Ármanna Sveinsdóttir, © Höfundaréttur: 2006, Logafold 46, 112 Reykjavík, sími: 567-3162, gsm:  690- 7444, aldaas@talnet.is           UMM   SÍM